ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Tæknimiðstöð Íslands - undirbúningsstarf

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Unnið er að undirbúningi þess að stofnuð verði íslenskt tæknimiðstöð (science center).  Enn skortir hér þennan mikilvæga þátt mennta, menningar og nýsköpunar.  Vinnuheiti verkefnisins er Tæknimiðstöð Íslands (var áður Tæknisafn Íslands)  Undirbúningsaðili er ÁTAK, en að starfinu stendur fjöldi landssamtaka, skóla, og annarra.  ÁTAK er opin og gjaldfrjáls áhugasamtök.

Tilgangur þessa vefs er að kynna undirbúningsstarfið; hvernig að því er staðið og hvernig því miðar, ásamt því að gefa innsýn í starfsemi tæknimiðstöðva og kynna möguleika þeirra.  Vefsíðan verður hluti af starfseminni og nýtist nú þegar skólum, nemendum og öðrum til fróðleiksmiðlunar og upplýsingar.  Fjölbreytt gagnasafn er að finna á vefsíðusafninu hér, bæði gagnvirkt efni og fróðleikur.  Vefurinn hefur verið fjölsóttur frá byrjun, og þakkar ÁTAK fyrir áhuga og stuðning við verkefnið.