ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Fyrirlestur Kaj Mickos

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Laugardaginn 5. september 2009 mun hinn sænski prófessor Kaj Mickos flytja fyrirlestur í húsi Orkutæknimiðstöðinni að Ásbrú.  Fyrirlesturinn er i boði Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna og Kadeco og er aðgangur ókeypis.  Kaj Mickos er mjög eftirsóttur fyrirlesari, en hann hefur þótt snjall í sinni aðferðafærði við að gera hugmyndir að markaðsvöru.  Hann hefur komið miklum fjölda hugmynda á framfæri og er sjálfur handhafi fjölda einkaleyfa.  Hægt er að kynna sér meira um fyrirlesturinn á þessum hlekk: http://www.facebook.com/pages/Asbru/88908533277?ref=share og hér er hlekkur á hugmyndasmiðju Kaj Mickos: http://www.innovationplant.se/

Elinóra Sigurðardóttir, stjórnarmaður í SFH, KVENN og ÁTAKi, á allan heiður að þessari heimsókn, sem er mikill hvalreki á fjörur frumkvöðla.  Hún hefur lengi leitað leiða til að koma þessu í kring, og það hefur nú tekist með velvilja Kadeco.  Á fyrirlestrinum mun Kaj Mickos útskýra sína aðferðafræði, og að honum loknum verða vinnusmiðjur þar sem aðferðirnar verða sýndar í verki.

Nú er tækifærið til að kynna sér hvernig best er að koma hugmyndunum í framkvæmd.