ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

ÁTAK fær skrifstofu

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Undirbúningssamtökin ÁTAK hafa, í samstarfi við Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna og KVENN, gert samning við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, og var hann undirritaður í gær, 13. oktober 2007.  Samningurinn felur í sér að þessi þrjú grasrótarsamtök á sviði nýsköpunar fá skrifstofuhúsnæði í frumkvöðlamiðstöðinni Eldey að Ásbrú (gömlu herstöðinni í Keflavík).  Eftir að íslenska ríkið eignaðist herstöðina við brottför hersins var ákveðið að nýta húseignirnar til uppbyggilegs rekstrar í þágu þjóðarinnar, og var Þróunarfélagið stofnað til að sjá um að koma því í not. Eldey var áður hús verkfræðideildar hersins, en nú hefur það verið skilgreint sem miðstöð fyrir frumkvöðla, ásamt því sem Keilir hefur þar kennslustofur.  Nokkrir frumkvöðlar leigja þarna aðstöðu til að koma verkefnum sínum úr höfn, og hafa sum fyrirtækin þegar náð góðum árangri.

Samningur ÁTAKs, SFH og KVENN felur í sér möguleika á annarri samvinnu, s.s. námskeiða- og ráðstefnuhaldi, en um slík verkefni yrði samið í hvert skipti.  Ekkert hefur verið rætt við Þróunarfélagið um vistun Tæknimiðstöðvar Íslands, en sá möguleiki er ekki síður uppi á borðum en hver annar.  Samstarfsfélögin þrjú munu skipuleggja viðveru á skrifstofunni, og er gert ráð fyrir að í byrjun verði föst viðvera a.m.k. tvo tíma í viku.  Opnunartímar verða kynntir hér á síðunni fljótlega.  Á meðfylgjandi mynd eru; Valdimar Össurarson (f.h. ÁTAKs); Kjartan Þ. Eiríksson (f.h. Þróunarfél. Keflavíkurflugvallar); Elinóra Inga Sigurðardóttir (f.h. KVENN) og Birgir Grímsson (f.h. SFH).