Stjórnarmenn ÁTAKs, Valdimar og Elinóra, áttu fund með Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra í gær, 9. nóvember. Þetta var fyrsti fundur stjórnarinnar með þessum ráðherra, og var því byrjað á að kynna verkefnið í stórum dráttum. Gerð var grein fyrir þeim skrefum sem stjórnin telur æskilegt að taka næst, sem eru að gera heildaráætlun um starfhæfa tæknimiðstöð þar sem fram komi m.a. starfshættir; kostnaðarlíkan; stofnkostnaður og önnur tilhögun. Telur stjórn ÁTAKs að þetta sé nauðsynlegur undanfari upplýstrar ákvarðanatöku og vandaðrar stofnsetningar. Stjórnin hefur sótt um lítilsháttar framlag á fjárlögum næsta árs til að standa straum að áframhaldandi undirbúningi. Lögð verður áhersla á að fá erlenda sérfræðinga að verkefninu, þar sem það er nýtt hérlendis. Vonast er eftir að unnt verði að fá hingað til lands tvo sérfræðinga á næsta ári til að hefja þetta starf, og kynna stjórnvöldum og öðrum í leiðinni þýðingu og starfsemi tæknimiðstöðva.
Menntamálaráðherra tók vel undir erindi stjórnarmanna. Hún var áhugasöm og spurði margs, en áttaði sig vel á mikilvægi verkefnisins. Sagðist hún ætla að ræða hvað unnt væri að gera til að tryggja fjárveitingar við sína samstarfsmenn á Alþingi, og taldi mikilvægt að þær fengjust þrátt fyrir erfitt ástand ríkisfjármála. Einnig lofaði hún að gera það sem í hennar valdi stendur til að koma málinu í umræðu við alla stefnumótun á vegum stjórnvalda sem að þessum málum snúa. Var því mjög jákvæður andi yfir þessum fundi og binda undirbúningsaðilar miklar vonir við velvild og áhuga ráðherra varðandi þetta málefni.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
Reynslan er besti kennarinn!

