ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Stuðningur Alþingis

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þrátt fyrir hið erfiða efnahagsástand þjóðarinnar og þrönga stöðu ríkissjóðs hefur Alþingi samþykkt að veita áframhaldandi stuðning sinn við undirbúning Tæknimiðstöðvar Íslands.  Með áframhaldandi framlögum til undirbúningsstarfsins sýnir Alþingi skilning á mikilvægi þess mikla starfs sem unnið hefur verið á sl. 6 árum.  Þó upphæðin núna sé ekki há, eða 700 þúsund krónur, gerir hún kleyft að ráðast í mikilvægan þátt 3ja áfanga sem beðið hefur framkvæmda.

Þar er um að ræða aðkomu erlendra sérfræðinga, sem væntanlega munu koma hingað til lands bráðlega.  Um leið og þeir kynna sér ýmsa þætti hérlendis munu þeir kynna starfsemi tæknimiðstöðva fyrir stjórnvöldum og hagsmunaaðilum.  Stjórn ÁTAKs þakka fyrir þennan skilning Alþingis við undirbúningsstarfið og mun hér eftir sem hingað til leitast við að vinna í nánu samstarfi við stjórnvöld.