ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Málþing um tæknimiðstöð

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Málþing um tæknimiðstöð
verður haldið að hótel Loftleiðum, sal 4,  þriðjudaginn 3. maí 2011, kl. 16.00-18.00. 
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, en óskað er eftir að gestir skrái þátttöku á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Dagskrá:
16.00 Kynning á undirbúningsstarfi ÁTAKs og stöðu verkefnisins. 
          Valdimar Össurarson, verkefnisstjóri
16.15 Tæknimiðstöðvar (science center); eðli þeirra og hlutverk.
          Grant Troop, varaforseti Ontario Science Centre í Toronto
16.45 Nýsköpunar- og frumkvöðlamennt í skólum.
          Svanborg R. Jónsdóttir, kennari í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt
17.00 Umræður og fyrirspurnir
18.00 Þingslit

Um málefnið:  Tæknimiðstöð er enn engin á Íslandi, en í nánast öllum þróuðum ríkjum heims eru slíkar stofnanir algengar undir alþjóðlega heitinu „science center“.  Í grannríkjum okkar eru tæknimiðstöðvar öflugur stuðningur við menntun, einkum á grunn- og framhaldsskólastigi.  Þær gegna einnig mikilvægu hlutverki í  eflingu nýsköpunar- og frumkvöðlastarfs; sem almenn fræðslusetur; til endurmenntunar kennara; sem kynning á landi og samfélagi og sem fjölsóttur viðkomustaður ferðafólks.  Í nær 8 ár hefur verið unnið að kynningu á þessu mikilvæga úrræði, síðustu árin á vegum á vegum ÁTAKs (Áhugasamtaka um tæknimiðstöð fyrir almenning og kennslu).  Að verkefninu hafa síðan komið fjölmargir aðilar; skólar, kennarar, kennarasamtök, nýsköpunarsamtök, verkalýðsfélög, áhugafólk o.fl. 

Búið er að greina þörfina á faglegan hátt.  T.d. gerði Kennaraháskóli Íslands skýrslu árið 2007 um þessa þörf, og er niðurstöðu hennar vel lýst í stuttri setningu; „Íslensk tæknimiðstöð er tímabær nauðsyn“, sem þar er rökstutt.  Víðtækur hópur úr mennta- og atvinnulífi skilaði áliti 2010 í tengslum við „Sóknaráætlun 20/20“ og þar er tæknimiðstöð talin öflugt úrræði til eflingar menntunar.  Helstu rökin er þó að finna þegar skoðaður er fjöldi tæknimiðstöðva hjá grannríkjum okkar; áherslan sem er á uppbyggingu þeirra; fjöldi skólaheimsókna og annarra gesta og aðferðir sem þar er beitt.  Í tæknimiðstöðvum er leitast við að fræða með öðrum aðferðum en unnt er að beita í hefðbundinni kennslustofu.  „Sjáðu-snertu-prófaðu -leiktu þér-lærðu“ eru skilaboðin til gestsins.  Allir kennarar vita hve auðvelt er að ná til nemenda í gegnum leiki og tilraunir.  Með þannig „hands-on“ aðferðum má m.a. ná til nemendahópa sem gegnur illa í hefðbundnu námi, en að sjálfsögðu er leiðbeining kennara nauðsynleg hér sem í skólastarfinu.  Nánari upplýsingar má sjá á www.tsi.is og þar eru hlekkir á síður og fræðsluefni.

Er ekki kominn tími til að íslenskum nemendum bjóðist sömu námsúrræði og nemendum í samanburðarríkjum okkar? 
Verður íslensk tæknimiðstöð á dagskrá við mótun hins „nýja Íslands“?
  

Mr. Grant Troop, aðalframsögumaður málþingsins, er varaforseti Ontario Science Centre í Toronto og yfirmaður fyrirtækja- og kynningarsviðs þess.    OSC er elsta tæknimiðstöð heims og ein sú stærsta.
Valdimar Össurarson er stofnandi ÁTAKs og verkefnisstjóri; fyrrv. kennari og nú fomaður Samt. frumkvöðla og hugvitsmanna.  Svanborg R. Jónsdóttir starfaði lengi sem grunnskólakennari; er stofnandi Félags ísl. kennara í nýsköpunar- og frumkvöðlamennt; doktorsnemi og höfundur kennsluefnis.  Undirbúning málþingsins hafa annast Valdimar og Elinóra Inga Sigurðardóttir, sem starfað hefur að nýsköpunarmálefnum; m.a. stofnandi og form. KVENN, Félags kvenna í nýsköpun, og stjórnarmaður í SFH og ÁTAKi.

Skólastjórnendur, kennarar og aðrir eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að kynna sér málefnið.  Ekki síst þeir sem vilja setja sér metnaðarfull markmið í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðslu.

Vinsamlega tilkynnið þátttöku á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Undirbúningsaðilar: ÁTAK – FÍKNF – KVENN - SFH