ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Tæknimiðstöð á sóknaráætlun

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Segja má að stór áfangi hafi náðst í margra ára baráttu ÁTAKs þegar lögð voru fram drög að Sóknaráætlun 20/20.

Ríkisstjórnin ákvað að hefja vinnu við sóknaráætlunina eftir síðustu kosningar, og skyldi hún verða heildstæð atvinnustefna, þar sem tillit yrði tekið til samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs í alþjóðlegum samanburði; útfærð í samráði stjórnvalda, sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins og háskólasamfélagsins. Stýrihópur var skipaður yfir verkefnið, en verkefninu var skipt í þrjá meginverkþætti;  sóknaráætlanir landshluta, framtíðarsýn og samkeppnishæfni.

Nokkrir vinnuhópar voru skipaðir um þann málaflokk sem snerti samkeppnishæfni landsins, þar á meðal einn sem fjallaði um menntun og nýsköpun. Honum stýrðu rektorar HÍ og HR, en þátttakendur komu úr fjölmörgum geirum menntunar, atvinnulífs og nýsköpunar. Meðal þátttakenda í hópnum voru stjórnarmenn ÁTAKs; Elinóra Inga Sigurðardóttir og Valdimar Össurarson, en þau voru um leið fulltrúar Félags kvenna í nýsköpun og Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna.

Stjórnarmenn ÁTAKs kynntu starf samtakanna og þá þörf sem hún beindist að. Verulegur áhugi var fyrir þessum málum í vinnuhópnum og margir tóku undir sjónarmið ÁTAKs. Í endanlegum tillögum vinnuhópsins er að finna texta sem síðan var tekinn orðréttur upp í endanleg drög að Sóknaráætlun 20/20. Þar er þessa setningu að finna: „Koma þarf á fót tæknimiðstöð (Science Center) sem myndi vekja athygli og áhuga barna og unglinga á raungreinum og örva nýsköpun”.

Fullyrða má að verði Sóknaráætlun samþykkt með þessu orðalagi sé stofnun tæknimiðstöðvar endanlega komin á verkefnalista stjórnvalda. Þar með eru mörkuð mikilvæg þáttaskil í starf ÁTAKs. Enn er þó langt í frá að baráttunni sé lokið. Svo verður ekki fyrr en íslensk tæknimiðstöð er að fullu tekin til starfa og þjónar þeim markmiðum sem ÁTAK hefur barist fyrir.