ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Grant Troop í heimsókn

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Einn helsti sérfræðingur heims um málefni tæknimiðstöðva hefur verið á Íslandi í boði ÁTAKs og samstarfsfélaga þess; Grant Troop, varaforseti Ontario Science Centre í Toronto. OSC er elsta tæknimiðstöð heims; í hópi þeirra stærstu og skipulag þess þykir til mikillar fyrirmyndar. OSC stundar víðtæka ráðgjafastarfsemi um allan heim og er Grant yfirmaður þeirrar deildar sem sér um erlend samskipti og fyrirtækjaþjónustu. ÁTAK hefur verið í góðum tengslum við sérfræðinga OSC um nokkurt skeið og þar ríkir áhugi og velvilji í garð Íslendinga í þessum efnum. Því var strax jákvætt tekið þegar ÁTAK spurðist fyrir um möguleika þess að fá hingað til lands sérfróðan mann á þessu sviði til að veita bestu fáanlega kynningu á starfsemi og eðli tæknimiðstöðva; bæði á opnu málþingi og á fundum með stjórnvöldum. Kostnaður við heimsóknina var greiddur af fjárveitingu sem félögin fengu á fjárlögum 2010 til að standa fyrir almennu málþingi til eflingar á nýsköpun og öðrum viðfangsefnum félaganna í samfélagsþágu.

Grant Troop reyndist hin mesta hjálparhella í þessari heimsókn. Hann hefur yfirgripsmikla þekkingu á öllum þáttum sem varða tæknimiðstöðvar og átti svör við hverri spurningu sem til hans var beint. Og spurningarnar voru margar. Grant Troop er viðfelldinn maður; skipulagður í hugsun og skýr í máli. Nánar verður greint frá hans framlagi á fundunum í fréttum hér á vefsíðunni. Stjórnarmenn ÁTAKs áttu mörg viðtöl og fundi með Grant meðan á heimsókn hans stóð og eru margs fróðari á eftir. Þá var viðtal við hann í Speglinum, fréttaþætti Rúv, þriðjudaginn 3. maí 2011.

Grant Troop er sannfærður um að íslensk tæknimiðstöð myndi vera mjög gagnleg fyrir íslenskt samfélag, ekki síður en hjá öðrum þjóðum. Hún mundi falla vel að því menntakerfi sem hér hefur verið byggt upp og yrði þar sú aukastoð sem þyrfi, t.d. til eflingar áhuga og skilnings á raungreinum, náttúrufræði og verklegum greinum. Einnig yrði hún öflug aðferð til eflingar á nýsköpun og rökrænni hugsun. Hann hafði kynnt sér vel helstu þætti í grunngerð íslensks samfélags, þar á meðal fyrirliggjandi drög að Sóknaráætlun 20/20. Sagði hann að vart væri finnanleg sú aðferðafræði sem betur þjónaði markmiðum Sóknaráætlunar um samkeppnishæfni en stofnsetning tæknimiðstöðvar. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að vinna skipulega varðandi ákvarðanatökur í þessum efnum. Mikilvægast væri að allir aðilar kæmu strax að mótunarvinnunni sem þyrftu að sjá um framkvæmd og afnot síðar, en einnig væri mikilvægt að sem fyrst yrði mótuð áætlun og tímasett markmið. Þá væri mikilvægt að hafa í huga að unnt er að stofnsetja tæknimiðstöð með margskonar hætti. Ekki er nauðsynlegt að ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir og fjárfestingar í byrjun. Unnt er að stofnsetja tæknimiðstöð sem í byrjun stundar einungis fjarvinnslu, eða það sem nefnt er "outreach programs" í þessum geira. Í því getur falist þjónusta við skóla útum allt land varðandi sérhæfða þætti og námsgreinar; og eru tengslin þá að mestu leyti í gegnum tölvunet. Einnig kemur til greina að halda úti heimsóknum í skóla, á bíl með nokkurn útbúnað tæknimiðstöðva. Þannig fjarþjónusta er þekkt erlendis, t.d. undir heitinu "science on the road". Starfsmenn yrðu að sjálfsögðu kennaralærðir og með sérstaka þjálfun á þessu sviði.

Grant sýndi þannig fram á að unnt er að fara ýmsar leiðir að stofnsetningu og starfrækslu íslenskrar tæknimiðstöðvar. Mikilvægt væri samt að hafa strax einhverja framtíðarsýn í huga þegar í byrjun og setja tímasettar vörður að henni. Gott væri að skoða í byrjun hverskonar tæknimiðstöð hér þyrfti að stofnsetja; hvort hún ætti að vera eingöngu tæknimiðstöð eða hvort starfrækja ætti safn í tengslum við hana. Rætt var m.a. um Náttúruminjasafn Íslands sem nýlega var stofnað, en enn hefur ekki verið mótað endanlega. Grant sagði a vissulega gætu verið hagræðing að því að staðsetja þetta tvennt í nágrenni og hafa samstarf, en ekki víst að sameiginlegur rekstur ætti vel við. Hinsvegar væru margar tæknimiðstöðvar starfræktar að hluta sem söfn, og þá einkanlega á tæknisviði; það gæti farið ágætlega saman.

Grant Troop fór, ásamt verkefnisstjóra ÁTAKs, í stutta skoðunarferð í kynningarmiðstöð OR á Hellisheiði. Hann var mjög hrifinn af þeirri starfsemi og kynningu sem þar er og sagði að kynningarmiðstöðin byði uppá mikla möguleika. Áhugi hans á staðnum stafaði ekki síður af hans sérmenntun, en hann er menntaður sem jarðfærðingur og starfaði um tíma við það. Lagði hann áherslu á að leitast yrði við að draga fram sérstæða þætti landsins, s.s. hreina náttúru; jarðhita og eldgos, í starfrækslu og uppsetningu tæknimiðstöðvar. Að lokinni heimsókn í Hellisheiðarvirkjun var farið í stutta skoðunarferð um Suðurland. Þá skoðaði Grant ýmsa staði í Reykjavík og var heppinn með veður meðan á heimsókninni stóð.