Fræðastarf er veigamikill þáttur í starfsemi allra tæknisafna. Á fastráðnum starfsmönnum hvílir oftast einhver rannsóknar- og úrvinnsluskylda, á sviðum sem tengjast starfseminni. Algengt er að á vegum tæknisafna komi út tímarit eða árbækur með niðurstöðum þessara rannsókna. Má t.d. nefna Volund sem Norsk Teknisk Museum gefur út, og Daedalus sem Tekniska Museet gefur út. Þetta er mikilvægt innlegg í menningar- og fræðastarf hverrar þjóðar.
Skjalasöfn eru fyrirferðamikil í sumum söfnum. Sem dæmi má nefna skjalasafn Tekniska Museet í Svíþjóð sem er viðamikill hluti stofnunarinnar. Þar er að finna 200.000 skjöl, 1.000.000 myndir og 56.000 bækur. Allt tengist þetta sögu tækniþróunar og vísindum. TM fæst verulega við minjasöfnun. Skjalasöfn eru þó ekki allsstaðar svo umfangsmikil. Hérlent safn myndi líklega einbeita sér að söfnun skjala og bóka sem tengjast tækniþróun og hugvitsstarfsemi, og vinna í nánu samstarfi við starfandi skjalasöfn.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
Reynslan er besti kennarinn!

