ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Hvernig virka tækin?

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

altÞessi hluti tæknisafnsins er eiginlega tækni- og vísindasýning, og gengur út á að útskýra nútímatækni og vísindi í sem víðustum skilningi og á skiljanlegan hátt.  Hér er útskýrt hvernig venjuleg heimilistæki virka; hversvegna flugvélar geta flogið; hvernig raforka er framleidd úr vatnsföllum og hvernig ál er unnið, svo dæmi séu tekin.  Einnig þær tækninýjungar og uppgötvanir sem nýjastar eru af nálinni hverju sinni.  Sýniaðferðir eru misjafnar, t.d. gegnskorin tæki, módel, vélahlutar, eða margmiðlun. Þarna eru einnig stórar eftirlíkingar af forvitnilegum tækjum í raunstærð, s.s. stjórnklefar, tæki til orkuvinnslu og rannsókna o.fl..  Raforkuframleiðslu og -flutningi eru gerð skil með módelum og ljósatöflum og hægt að prófa ýmsar aðferðir og lögmál af eigin raun.  Er hér aðeins fátt talið af því sem þarna er sýnt.  Hérlent safn myndi eflaust fást m.a. við að lýsa jarðhitakerfum, vatnsbúskap, orkuvirkjum, veðrakerfum, haffræði, lífkerfum, veiðitækni, verksmiðjum, iðntækni, líftækni, nanótækni o.fl. þáttum.  Þessi þáttur er veigamikill hluti af starfsemi allra þjóðartæknisafna og iðulega í tengslum við vísindastofuhlutann og tækniþróunarsýningu.  Iðulega eru settar upp sýningar á vegum hinna ýmsu fyrirtækja í tækniþróun og framleiðslu.  Hér er því bæði um langtíma- og skammtímasýningar að ræða.