ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Önnur starfsemi

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

altSafnbúð, fyrirlestrasalir og veitingarekstur eru sjálfsagðir þættir í starfsemi hvers tæknisafns.  Tilgangurinn er annars vegar að auka og styðja við aðra þjónustu og hinsvegar að skapa tekjur með sölu- og leigustarfsemi.  Safnbúðir tæknisafna eru misstórar.  Þar er seldur ýmis varningur sem tengist starfsemi og sýningum; s.s. leikföng, bækur, minjagripir o.fl.  Þessir munir miða að sömu gildum og annað á safninu.: Fyrst og fremst að vekja áhuga og fræða.  Safnbúðin er iðulega staðsett við anddyri og er um leið upplýsingamiðstöð fyrir safnið.  Fyrirlestrarsalir eru nauðsynlegir í starfsemi safnsins, t.d. vegna skólastarfs.  Einnig eru þeir leigðir út til tekjuöflunar.  Veitingarekstur þarf að vera í safnhúsinu eða í næsta nágrenni þess.  Gestir eru oft langt að komnir og dvelja sumir lengi.  Veitingarekstur er gjarnan leigður út til fagmanna á því sviði.

Framleiðsla, viðhald og geymsla eru þættir sem óhjákvæmilega fylgja rekstri tæknisafns.  Á verkstæði safnsins þarf a.m.k. að vera aðstaða til viðhalds á tækjum vísindastofu og annarra eigna safnsins; uppsetningu sýninga, ásamt aðhlynningu á munum sem berast safninu, t.d. á tæknisögusýningu.  Oftast eru smíðuð einhver tilrauna- eða leiktæki frá grunni, og mörg tæknisöfn reka umfangsmikla framleiðslu og útleigu á þessu sviði.  Geymslur þurfa að vera fyrir hendi fyrir leiktæki, muni, efni o.fl.  Sum tæknisöfn hafa mikla söfnunar- og varðveisluskyldu, s.s. Tekniska Museet í Stokkhólmi.  Þar er geymsluhúsnæði verulegur hluti af húsakosti stofnunarinnar.