Samvinna við skóla er viðamikill þáttur í starfsemi tæknisafna, og þau eru í eðli sínu menntastofnanir. Erlend tæknisöfn vinna öll mjög náið með skólum, enda megintilgangur þeirra að efla fræðslu og áhuga varðandi raungreinar. Misjafnt er þó hve þau ganga langt og hvaða aðferðum er beitt. Höfuðtæknisöfn nágranna okkar í Svíþjóð og Noregi hanna sínar sýningar með tilliti til námskrár. Fyrir hvert kennsluár er boðað til fundar með raungreinakennurum þar sem farið er yfir þeirra óskir um sýninga- og kennslutilhögun. Skólarnir skipuleggja síðan sínar bekkjarheimsóknir þannig að skoðunarferðir á tæknisafnið með leiðsögn falli sem best að kennsluefni og skólastarfi hverju sinni. Á tæknisafninu er hugsað fyrir aðstöðu til kennslu, verkefnavinnu og umræðuhópa. Hér er þó ekki allt talið. Skólinn getur síðan fylgt heimsókninni eftir, bæði með því að nýta sér sérstakar vefsíður safnsins og einnig með sambandi við leiðbeinanda hjá safninu. Sérstakar vefsíður tæknisafna eru beinlínis ætlaðar til notkunar í skólastarfinu, og þar er efnt til áhugaverðra verkefna í samræmi við námsskrár raungreina. Ennfremur hafa tæknisöfn iðulega milligöngu um heimsóknir sérfræðinga og rannsóknafólks til skólanna, auk samantektar á kennsluefni í raungreinum. Tæknisafn er því veigamikill hlekkur í menntakerfi annarra þjóða. Hlekkur sem okkur vantar ennþá, þó við höfum að öðru leyti tileinkað okkur þessi menntakerfi.
Hægt er að fá góða hugmynd um skólastarf tæknisafns á heimasíðu Norsk Teknisk Museum;www.tekniskmuseum.no en undir krækjunni "skoletilbud" má sjá hvernig safnið skipuleggur starfsemi sína í nánu samstarfi við skólana og með tilliti til námsskrár.
Endurmenntun kennara er náskyld öðru fræðsluhlutverki tæknisafna. Söfnin eru kjörinn vettvangur til endurmenntunar og námskeiðahalds á sviði raungreina. Þar starfslið, tækjakostur, yfirgripsmikil sérþekking og fundasalir, auk þess sem þar er grannt fylgst með nýjungum og áherslubreytingum s.s. í námskrá, námsefni o.fl. Um leið verða skoðanaskipti milli kennara og safnstjórnenda til að bæta starfsemi safnsins í þágu skólanna og auka skilvirkni í kennslu.
Alþýðufræðsla. Fáar stofnanir eru betri vettvangur alþýðufræðslu en Tæknisöfn. Þangað kemur fjölskyldan gjarnan, t.d. í helgarfríum. Foreldrar skemmta sér með börnum í leiktækjum og útskýra um leið það sem börnin skilja ekki. Þetta vekur áhuga barnsins, hvetur það til umhugsunar og mótar framtíðaráform. Áhugi og umræða sem kviknar af heimsókn í tækisafn fylgir síðan barninu á heimilið og í skólann. E.t.v. er þetta hið eðlilegasta form fræðslu sem hugsast getur. Um leið er þetta ákjósanleg leið til endurmenntunar og upprifjunar fyrir fullorðna. Annar vettvangur fullorðinsfræðsu eru starfsmannaferðir fyrirtækja í tæknisöfn. Algengt er erlendis að fyrirtæki bjóði starfsmönnum í hvataheimsóknir á tæknisöfn. Ferðin hefst með skoðunar- og skemmtiferð um sýningar safnsins, en lýkur gjarnan með kvöldvöku í veitingasal þess.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
Reynslan er besti kennarinn!

