ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

Tækniþróunarsýning

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þessi hluti tæknisafns er sögutengd sýning sem sýnir tækniþróun heimalandsins.  Einkum eru dregnir fram þeir þættir sem einkennandi eru fyrir viðkomandi svæði, eða aðlagast hafa menningarlegum og náttúrulegum aðstæðum.  Tækniþróunin er sýnd í tímasamfellu, en gjarnan dregnir sérstaklega upp þeir þættir sem einkenna atvinnulíf viðkomandi þjóðar eða svæðis, og þeim gerð góð skil.  Sem dæmi um sérsvið hérlendis mætti nefna orkuvinnslu úr fallvötnum og jarðvarma, álframleiðslu, sjálfvirkni - tölvutækni, líftæknirannsóknir, hafrannsóknir - veiðar, og jarðvísindi.  Tæknisögukynning er veigamikið hlutverk stærri tæknisafna, og það sem e.t.v. hefur mest menningarlegt gildi, enda verið að sýna mikilvægan hluta þjóðararfsins.  Ýmsar stofnanir hérlendis halda utan um einstaka þætti íslenskrar tæknimenningar, s.s. búvélasafn, samgöngusafn, símaminjasafn, síldarminjasafn o.fl.  Hvergi er þó hægt að ganga í gegnum sögu íslenskrar tækniþróunar í heild sinni.  Úr því myndi þjóðartæknisafn bæta.