Vísindastofa (e: science center) er fyrirbæri sem er lítið þekkt hérlendis, en er e.t.v. best lýst sem millistigi á leiktækjasal, gestaþraut og tilraunastofu í skóla. Þetta er í raun gagnvirkur (hands-on) og fræðandi leiktækjasalur, þar sem öll tæki miða annars vegar að því að vera skemmtileg og ætluð fyrir mikla notkun allra aldurshópa, en hins vegar ætluð til að fræða notandann um eðli og virkni; eðlisfræði og náttúrulögmál, auk þess að hvetja til frekari áhuga og efla rökræna hugsun. Helstu skilaboðin til gesta eru þessi: sjáðu, snertu, prófaðu, upplifðu! Hér er allt leikur og upplifun, en um leið situr eftir ánægjuleg minning um virkni og skilningur á eðli upplifunarinnar. Mörg tækjanna eru lík því sem sjá má í vel búnum tilraunastofum skóla, en gerð til að þola mikla notkun undir takmörkuðu eftirliti. Hér geta börn og unglingar gert tilraunir á eigin spýtur; fengið að upplifa á skemmtilegan og fræðandi hátt það sem í kennslubókunum stendur. Hér verður kennslan leikur í stað ítroðslu. Öll tæknisöfn leggja mikla áherslu á þennan þátt, og sum þeirra eru reyndar byggð upp í kringum þessa starfsemi, s.s. Experimentarium í Hellerup. Oft eru sömu tækin lengi í notkun, en einnig er mikið um farandsýningar sem leigðar eru milli starfandi tæknisafna. Meira hér um starfsemi vísindastofu.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
Reynslan er besti kennarinn!

