Áfangaskýrsla undirbúningsnefndar I.
Skýrsla sem unnin var að loknum 1. áfanga undirbúningsstarfsins. Henni fylgir skýrsla VST um mat á stofn- og rekstrarkostnaði. Skýrslan var kynnt 1. des. 2006 og afhent menntamálaráðherra. Dreift á Alþingi stuttu síðar.
Skýrsla VST um byggingar- og rekstrarkostnað T.Í.
Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen vann þessa skýrslu að beiðni undirbúningsnefndar. Hér er lagt mat á stofnkostnað og rekstrarkostnað tæknimiðstöðvar (þá nefnt tæknisafn) samkvæmt bestu fáanlegu forsendum og miðað við fyrirliggjandi hugmyndir.
Sérfræðiálit KhÍ/SRR um stofnun T.Í.
Undirbúningsnefnd fékk Kennaraháskóla Íslands til að vinna sérfræðiálit um gagnsemi og þörf fyrir Tæknimiðstöð Íslands í þágu íslenska menntakerfisins. Deild KhÍ sem nefnist Símenntun-rannsóknir-ráðgjöf vann þessa skýrslu sjálfstætt, en kallaði eftir áliti sérfræðinga úr mörgum greinum skólastarfsins. Niðurstöður sýna ótvírætt að brýn þörf er fyrir íslenskt þjóðartæknisafn.
Tillögur að stefnu Vísinda- og tækniráðs 2006-2009
Í vísinda- og tækniráði sitja ráðherrar forsætis, fjármála-, iðnaðar- og menntamála og margir ráðherraskipaðir aðilar úr mennta- og atvinnulífi. Hér er að finna framtíðarsýn, áherslur og ábendingar um leiðir varðandi eflingu mennta og rannsókna, einkum á háskólastigi. Áhersla er m.a. lögð á að byggja upp menntakerfi í fremstu röð í heiminum.
Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar 2007
Vakin er athygli á kaflanum um "menntun í fremstu röð". Til að hafa menntun í fremstu röð þurfum við að hafa námstæki til jafns við aðrar þjóðir. Enn vantar okkur þjóðartæknimiðstöð og vísindastofu. Lögð verður áhersla á einstaklingsmiðað nám og eflingu verkmenntunar. Ber það að sama brunni.
Umfang og umhverfi frumkvöðlastarfsemi á Íslandi 2004
Niðurstöður rannsókna sem gerð var á vegum Háskólans í Reykjavík. Meðal annars kemur fram að frumkvöðlamenntun á Íslandi er óviðunandi, einkum á grunnskóla- og framhaldsskólastigi.
Ávarp forseta Íslands í Þjórsárveri 2004
Flutt í tilefni opnunar sýningarinnar "Hugvit og hagleikur". Hvetur m.a. til varðveislu á minningu og verkum íslensks hugvitsfólks.
Aðalnámskrá grunnskóla í hönnun og smíði.
Einn megintilgangur fagsins er að gera nemandann hæfari til að takast á við síbreytilegt umhverfi tækni og þekkingar; aðlagast tækninýjungum; átta sig á möguleikum þeirra og hagnýta þær. Hér hefur Tæknimiðstöð veigamiklu hlutverki að gegna.
Aðalnámskrá grunnskóla í upplýsinga- og tæknimennt.
Lögð er áhersla á að nemandinn þjálfist í að nýta sér tækni; sé virkur gerandi og fái að spreyta sig á verkefnum að eigin vali. Einnig að tengja verkefnavinnu við raunverulegar aðstæður. "Sérstök áhersla er lögð á tækniumhverfi nútímans...." Tæknimiðstöðvar víðsvegar um heim hafa veigamiklu hlutveki að gegna við þessa grein menntunar.
Aðalnámská grunnskóla í náttúrufræði og umhverfismennt.
Fjallar m.s. um kennslu í eðlisvísindum og skyldum greinum. Tæknimiðstöð væri mikilvægt hjálpartæki skólanna við framkvæmd þessarar námsskrár.
Safnalög nr. 106/2001.
Hér er m.a. að finna skilgreiningar á safni (4. grein).
Menntun í mótun.
Skýrsla, útg. af menntamálaráðuneytinu, um niðurstöður starfshópa um árangur menntastarfs á Íslandi í samanburði við stefnumótunarvinnu ESB.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|
Reynslan er besti kennarinn!

