ja-cpanel-top

Tæknimiðstöð Íslands

Joomla! Community Portal Reynslan er besti kennarinn!

ÁTAK

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

ÁTAK er nafnið á undirbúningssamtökum vegna Tæknisafns Íslands.  Nafnið stendur fyrir "Áhugasamtök um tæknimiðstöð fyrir almenning og kennslu", og segir það nokkuð um tilganginn.  Samtökin munu stýra undirbúningsstarfi vegna verkefnisins, og e.t.v. koma að stofnun og rekstri tæknimiðstöðvar á einhvern hátt.

Samtökin ÁTAK eru opin öllum sem hafa áhuga á framgangi málefnisins, og vilja leggja hönd á plóginn.  Allir geta orðið félagar; einstaklingar, fyrirtæki, félög, stofnanir, samtök, skólar og aðrir.  Engin skuldbinding fylgir aðild, og engin félagsgjöld eru innheimt.  Enginn hagnaður verður heldur til sem hægt er að greiða félögum.

Spurning:  Hversvegna ætti þá einhver að vilja gerast félagi ?

Svar:  Með því að gerast félagi í ÁTAKi sýnir fólk vilja til að koma þessu verkefni í höfn, og getur einnig haft áhrif á hvernig að því er staðið.  Sá/sú sem skráir sig sem félaga eflir enn frekar þá hreyfingu sem þegar er komin af stað og miðar að stórbættri raungreinamenntun í landinu, varðveislu menningarverðmæta, bættri landkynningu, skemmtilegum afþreyingastað, virku forvarnarstarfi og öflugra vísindasamfélagi.  Haldnir verða félagsfundir a.m.k. einu sinni á ári, og ætlunin er að gera þá að líflegum samkomum.  Þar geta félagsmenn komið sínum hugmyndum og áhugamálum á framfæri og ráðið framvindu verkefnisins, m.a. með kosningum í verkefnisstjórn.  Á milli félagsfunda er einnig opin leið til að koma ábendingum á framfæri, t.d. með símtali (862 2345) eða tölvupósti ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ) til verkefnisstjórnar.  Ýmislegt er í ahugun til að lífga upp á félagsstarfið.  Til dæmis er ætlunin að halda mikla kynningarráðstefnu þar sem m.a. verður boðið upp á sýnishorn af þeirri starfsemi sem fyrirhuguð er.  Félagsmenn munu njóta sérkjara þegar einhver starfsemi hefst á vegum ÁTAKs, hvort heldur það verða sýningar, fræðsluefni eða annað.

Hvað þarf að gera til að verða félagsmaður ?

Verkefnisstjóri ÁTAKs tekur við skráningum félagsmanna.  Best er að senda tölvupóst á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. til að ekkert fari milli mála.  Gefa þarf upp nafn og tölvupóstfang.  Ekki verra að láta heimilisfang fljóta með, og nauðsynlegt ef ekki er um tölvupóstfang að ræða.  Félagsmenn eru settir á tölvupóstlista.  Hann er síðan notaður til að senda fréttir af gangi verkefnisins; óska eftir tillögum félagsmanna og boða fundi og viðburði.  Þeir sem ekki vilja póst geta að sjálfsögðu beðist undan því.  Minnt er á að félög, stofnanir og fyrirtæki geta einnig verið skráðir félagar.  Nú þegar eru þannig aðilar skráðir í félagatal.

Sendu skráningu á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þú vilt ganga í ÁTAK.